Ísland hóf að beisla jarðvarmaorku í upphafi 20. aldar en í margar aldir fram að því höfðu Íslendingar notað náttúrulegar uppsprettur jarðvarma til að baða sig og þvo þvott. Árið 1908 hófst beislun jarðvarma í þeim tilgangi að kynda heimili fólks og í dag er Ísland fremst í flokki hvað varðar framleiðslu jarðvarmaorku, en hún er 30% af heildarorkuframleiðslu landsins og 98% af kyndingu heimila og iðnaðar.
Vegna hagkvæmrar grænnar raforku og áreiðanlegs flutningskerfis er Ísland heillandi staðsetning fyrir ýmsar atvinnugreinar, sem stuðlar að spennandi tækifærum fyrir innlenda framleiðslu.
Enn eru þónokkrir möguleikar jarðvarma ókannaðir og því er Ísland í fágætri stöðu þar sem orka er takmörkuð. Helstu orkuframleiðendum Íslands er nú kleift að bjóða upp á græna raforku á afar samkeppnishæfu verði - u.þ.b. 50% lægra verði en raforkuverð í Vestur-Evrópu.
Baseload Power miðar að því að leika lykilhlutverk í nýtingu þessara tækifæra. Með uppbyggingu vistvænna orkuvera höfum við gríðarlegt tækifæri í höndunum til að þróa ónýtta og endurnýjanlega orkugjafa.
Orkuver Baseload Power eru starfrækt með þessum hætti og bráðlega bætist hið þriðja í hópinn. Við erum einnig með samninga á Flúðum og í Ölfusi, þar sem við leitum nýrra tækifæra fyrir umframvarma til orkuframleiðslu.